

Sérfræði- og áhugasvið
Helma Bergmann er sálfræðingur, sérfræðingur í klínískri sálfræði og núvitundarleiðbeinandi. Hún sinnir greiningu og almennri sálfræðimeðferð fyrir fullorðna. Sérsvið hennar eru kvíði, þunglyndi, streita, áföll, átröskun (átkastaröskun) og offita. Hún nýtir helst aðferðir hugrænnar atfelismeðferðar, samkenndarnálgunar, núvitundar, EMDR áfallameðferðar og partavinnu í sinni vinnu.
Menntun
Helma lauk BA prófi frá Háskóla Íslands 1992 og cand psych gráðu frá sama skóla 2003. Hún lauk mastersgráðu í heilsusálfræði frá Northern Arizona University 2000, sérnámi í hugrænni atferlismeðferð frá EHÍ 2008 og hlaut sérfræðiviðurkenningu í klínískri sálfræði 2018. Hún hefur lokið þjálfun í EMDR áfallameðferð, sótt ýmis kennara- og þjálfunarnámskeið í núvitaðri hugrænni meðferð (MBCT) á vegum Oxford Mindfulness Centre og Bangor University og kennaranámskeiðum í Núvitaðri samkennd í eigin garð (Mindful Self-compassion). Hún hefur sótt margvísleg námskeið, ráðstefnur og vinnustofur á ýmsum sviðum sálfræðinnar í gegnum árin og er menntaður jógakennari.
Starfsreynsla
Helma hefur starfað sem sálfræðingur síðan 2003, fyrstu árin sem sálfræðingur á Landspítala háskólasjúkrahúsi og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Á árunum 2006-2025 starfaði hún á Reykjalundi, á Efnaskipta- og offitusviði, þar sem hún sinnti greiningarvinnu, einstaklings- og hópmeðferð, fræðslu, námskeiðahaldi, handleiðslu nema og rannsóknarvinnu. Samhliða klínísku starfi sinnti hún fræðslu og námskeiðshaldi fyrir almenning í mörg ár tengt bættum heilsu- og matarvenjum. Einnig hefur hún sinnt kennslu í sálfræði á framhaldsskólastigi. Frá 2016 hefur hún rekið eigin sálfræðistofu og er nú með aðstöðu hjá Núvitundarsetrinu.
