top of page
stofa.jpg
Sigurlaug.jpg

Sérfræði- og áhugasvið 

Sigurlaug er sálfræðingur, sérfræðingur í klínískri sálfræði og núvitundarleiðbeinandi. Hún sinnir greiningu og almennri sálfræðimeðferð fullorðinna á stofu og leiðir hópnámskeið. Sérsvið hennar eru átraskanir (lystarstol, lotugræðgi, átkastaröskun), líkamsskynjunar- og sjálfsmyndarvandi, offita, kvíði og þunglyndi. Hún vinnur jafnframt með áföll og annan fjölþættan tilfinningavanda daglegs lífs. Hún notast við aðferðir hugrænnar og díalektískrar atferlismeðferðar, núvitundar og samkenndarnálgunar í meðferðarvinnunni. 

Menntun 

Sigurlaug lauk BA prófi í sálfræði frá Háskóla íslands árið 2001, Cand. psych. gráðu frá sama skóla 2005 og hlaut sérfræðiviðurkenningu í klínískri sálfræði árið 2016. Hún hefur sótt ráðstefnur og margvísleg námskeið og vinnustofur, þ.á.m. sérhæfð HAM námskeið, kennsluþjálfun fyrir fagaðila í núvitund á vegum Oxford Mindfulness Centre og Bangor háskóla, leiðbeinendanámskeið í Mindful eating og vinnustofur um meðferð byggða á samkennd. 

Starfsreynsla 

Sigurlaug hefur unnið sem sálfræðingur á stofu síðan 2016 og verið núvitundarleiðbeinandi hjá Núvitundarsetrinu síðan þá. Hún er nú með stofu hjá Sálfræðiþjónustunni Styðjandi. Sigurlaug starfaði í yfir áratug (2006-17) á geðsviði Landspítalans þar sem hún sinnti margvíslegum verkefnum, svo sem greiningarvinnu, einstaklings- og hópmeðferðum á göngu- og dagdeild, fjölskyldumálum, handleiðslu fagfólks og nema, fræðslu, ráðgjöf og teymisstjórnun. Hún hefur jafnframt sinnt stundakennslu á háskólastigi og tekið þátt í rannsóknarvinnu. 

sigurlaug@nuvitundarsetrid.is 
 

Sigurlaug María Jónsdóttir

bottom of page