top of page
Núvitundarsetrið eru samtök sérmenntaðra fagaðila 
sem bjóða upp á gagnreynd námskeið og þjálfun í
núvitund og samkennd fyrir fólk á öllum aldri

HUGLEIÐSLUÆFINGAR

Við viljum benda áhugasömum á að nýta sér leiddar hugleiðsluæfingar sem eru aðgengilegar hér á heimasíðunni og á Spotify.

 

Núvitund er sú vitund sem skapast við að beina athyglinni með ásetningi, á þessu augnabliki, að því sem er, eins og það er, án þess að dæma.

Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á að núvitundarþjálfun hefur jákvæð áhrif á almenna vellíðan, bætir heilsufar, dregur úr streitu, kvíða og depurð.

      NÆSTU NÁMSKEIÐ

1. nóv. - Núvituð samkennd í eigin garð (MSC) - FULLBÓKAÐ

Leiðbeinendur: Anna Dóra og Margrét A.

23. nóv. - Núvituð samkennd í eigin garð (MSC) - FULLBÓKAÐ

Leiðbeinendur: Guðbjörg og Herdís

5. des. - Núvituð samkennd í eigin garð (MSC) 

Leiðbeinendur: Bryndís Jóna og Guðbjörg

9. jan. 2023 - Núvitund og HAM gegn þunglyndi og kvíða (MBCT)

Leiðbeinandi: Silla Maja og Sólveig Hlín

12.jan. - Núvituð samkennd í eigin garð (MSC) 

Leiðbeinendur: Anna Dóra og Eygló

17. jan. - Núvitund: hagnýt leiðsögn - síðdegisnámskeið

Leiðbeinandi: Guðbjörg

20. jan. - Samkenndarmiðuð meðferð (CFT)

Leiðbeinandi: Anna Dóra og Herdís

24. jan. - Núvitund gegn streitu (MBSR)

Leiðbeinandi: Anna Dóra

23. jan. - Mindfulness-Based Cognitive Therapy (MBCT) - in English

Instructor: Herdís

8. feb. - Núvituð samkennd í eigin garð (MSC) 

Leiðbeinendur: Guðbjörg og Herdís

9. feb. - Núvituð samkennd í eigin garð (MSC) - síðdegisnámskeið

Leiðbeinendur: Bryndís Jóna og Herdís

7. mars. - Núvituð samkennd í eigin garð (MSC) 

Leiðbeinendur: Anna Dóra og Eygló 

Vor 2023 - Heilbrigt samband við mat og líkama með núvitund

Leiðbeinandi: Silla Maja

 

Núvitundarsetrið hefur það að markmiði að tryggja gæði þjónustu og fagmennsku í anda núvitundar og samkenndar. Einungis er boðið upp á námskeið og meðferð sem hafa sterkan vísindalegan bakgrunn og veita hópum og einstaklingum þjónustu sem er snérsniðin til að mæta þörfum hvers og eins.

Núvitundarsetrið býður upp á gagnreynd námskeið og þjálfun í núvitund og samkennd fyrir eftirfarandi hópa og einstaklinga:

· fólk sem vill auka almenn lífgæði sín

· fólk sem er að kljást við bæði líkamleg/andleg veikindi

· fólk sem er að takast á við lífskrísur

· starfsmannahópa og stjórnendur

· nemendur og starfsfólk á öllum stigum skólastarfsins

· einstaklingsþjálfun í núvitund og samkennd

bottom of page